Rými til að staldra við
Vellíðunarhús byggt á rannsóknum á heilsu og vellíðan. Hér lærir þú að rækta litlu hlutina í hversdeginum sem hjálpa þér að blómstra.
Námskeið í jákvæðri sálfræði hefst 6. febrúar
Skráning er hafin
Að blómstra
Jákvæð sálfræði í daglegu lífi
Við kynnumst rannsóknum á því hvað stuðlar að vellíðan og lærum hagnýtar aðferðir sem við getum nýtt í daglegu lífi. Námskeiðið fer fram í litlum hópi og hlýlegu umhverfi.
- HefstLaugardaginn 6. febrúar
- FramhaldFimm þriðjudagskvöld kl. 17 til 19
- HópurinnHámark 16 þátttakendur
- Verð145.000 kr. við snemmskráningu til 15. janúar
Vísindin á bak við vellíðan, á mannamáli
Í EIK sameinum við rannsóknir úr jákvæðri sálfræði, taugavísindum og heilsuvísindum. Námskeiðin okkar kenna einfaldar æfingar sem hjálpa þér að byggja upp góðar venjur, styrkja tengsl og finna meiri gleði í daglegu lífi.
Af hverju EIK?
Eikin er tákn um styrk, seiglu og vöxt. Hún minnir okkur á að sterkar rætur, næring og tími skapa grunninn að því að vaxa og dafna.
Hjá EIK byggjum við á þeirri hugsun að vellíðan snúist ekki aðeins um að takast á við það sem er erfitt, heldur líka um að rækta styrkleika okkar, tengsl, gildi og það sem gefur lífinu merkingu.
Líkt og undir laufkrónu eikarinnar viljum við skapa skjól og rými til að staldra við, tengjast, safna kröftum og halda áfram að vaxa, á eigin hraða.
Þess vegna heitir húsið okkar EIK.
Hrönn RóbertsdóttirEva Björk Sveinsdóttir
Konurnar á bak við EIK
Við kynntumst í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði. Bakgrunnur okkar er ólíkur. Önnur okkar er tannlæknir og eigandi Brosið Heilsuklínik, hin hefur unnið að uppbyggingu vörumerkja í áratugi. Fljótt kom þó í ljós að við deildum sömu sýn.
Í náminu lærðum við að það er munur á því að eiga gott líf og að blómstra í lífinu. Oft felst sá munur ekki í stórum breytingum heldur í litlu hlutunum í hversdeginum: hvernig við öndum, hreyfum okkur, tengjumst fólkinu í kringum okkur og hverju við veljum að beina athyglinni að.
Þannig varð EIK til.
EIK er staður þar sem við færum þekkingu og rannsóknir á vellíðan nær daglegu lífi, á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Við trúum því að þessi þekking eigi ekki bara heima í bókum eða fyrirlestrarsölum, heldur líka í hversdeginum, í litlu hlutunum sem geta haft áhrif á líðan okkar og líf.
Við erum sjálfar stöðugt að læra, þroskast og uppgötva nýjar leiðir til að efla eigin vellíðan. Á þessari vegferð erum við öll samferða og við hlökkum til að deila henni með ykkur.
Eva og Hrönn
Í boði hjá EIK
- Að blómstra Námskeið í jákvæðri sálfræði þar sem við ræktum það sem gerir lífið innihaldsríkt. Hefst 6. febrúar · Skráning
- Vörur og fræðsluefni Góðvildarkort og aðrar vörur sem styðja við vellíðan. Góðvildarkort · Panta
- Þegar húsið opnar EIK opnar formlega árið 2027. Þá bætast við markþjálfun, persónuleg ráðgjöf, fyrirlestrar, fræðsla, djúpslökun og aðrir stakir viðburðir. Væntanlegt 2027 · Fá fréttir
Góðvildarkort
Það þarf ekki mikið til að gleðja aðra. Að hleypa einhverjum fram fyrir sig í röðinni eða segja manneskju hvers vegna okkur þykir vænt um hana getur skipt meira máli en við höldum.
Rannsóknir í jákvæðri sálfræði hafa sýnt að góðverk geta aukið vellíðan, styrkt tengsl og vakið jákvæðar tilfinningar. Það fallega við góðvildina er að hún getur haft jákvæð áhrif á bæði þann sem sýnir hana og þann sem þiggur.
Góðvildarkortin frá EIK eru 35 kort með einföldum hugmyndum að því hvernig við getum sýnt öðrum góðvild og verið góð við okkur sjálf. Þau eru leið til að færa þekkingu jákvæðrar sálfræði inn í daglegt líf og minna okkur á að gefa góðvildinni pláss, líka þegar mikið er að gera.
Dragðu eitt kort og láttu það vera innblástur fyrir daginn. Hafðu það sýnilegt, prófaðu það sem stendur á því eða deildu því með einhverjum sem þér þykir vænt um. Kortin eru líka hugulsöm gjöf, til að þakka fyrir sig, gleðja vin eða einfaldlega láta einhvern vita að hugsað sé til hans.
Góðvild á vinnustað
Vinnustaðarútgáfan inniheldur öll 35 kortin ásamt 17 viðbótarkortum sem hvetja til góðvildar í samskiptum á vinnustað. Hægt er að draga kort saman í upphafi vinnudags eða velja eitt til að hafa að leiðarljósi í vikunni.
Lítil góðverk geta haft mikil áhrif.
- Góðvildarkort35 kort · 4.900 kr.
- Vinnustaðarútgáfa52 kort · 5.900 kr.
- Stærð korta65 × 100 mm
- UmbúðirLífrænn hörpoki
Pantaðu kortin með tölvupósti á eik@eikhouse.is.
Fylgstu með
Skráðu netfangið þitt og við látum þig vita af nýjum námskeiðum, viðburðum og fréttum frá EIK.