Langborð í dagsbirtu með leirbollum, opnum bókum, blýöntum og grein í vasa

Námskeið í jákvæðri sálfræði

Að blómstra

Gefðu því sem skiptir þig máli
meira rými

Námskeiðið hefst laugardaginn 6. febrúar og er haldið að Hlíðasmára 19 í Kópavogi.

Í framhaldi af því verður kennt fimm þriðjudagskvöld: 23. febrúar, 2., 9. og 16. mars og 6. apríl, frá kl. 17:00 til 19:00.

Ræktum það sem gerir lífið innihaldsríkt.

Um námskeiðið

Hvað gerir lífið þess virði að lifa því?

Lengi vel beindist athygli sálfræðinnar fyrst og fremst að því sem fer úrskeiðis í lífi fólks. Jákvæð sálfræði nálgast viðfangsefnið frá öðru sjónarhorni og spyr: Hvað er það sem fólk gerir rétt? Hvernig tekst fólki að finna tilgang og lifa innihaldsríku lífi, jafnvel þegar það mætir erfiðleikum?

Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem leitast við að skilja hvað stuðlar að vellíðan, lífsánægju og góðu lífi. Hún beinir sjónum sínum ekki síður að styrkleikum en veikleikum og rannsakar hvernig við getum þroskast, dafnað og tekist á við þær fjölbreyttu aðstæður sem lífið ber í skauti sér.

Á námskeiðinu Að blómstra kynnumst við rannsóknum á því hvað stuðlar að vellíðan og lærum hagnýtar aðferðir sem við getum nýtt í daglegu lífi. Að blómstra snýst ekki um að vera alltaf hamingjusöm, heldur um að lifa innihaldsríku lífi, rækta styrkleika sína og finna leiðir til að takast á við það sem lífið færir okkur.

Við hittumst í litlum hópi í hlýlegu umhverfi þar sem fræðsla, sjálfsskoðun, umræður og æfingar fléttast saman. Markmiðið er að gefa okkur tækifæri til að staldra við, skoða hvað skiptir okkur máli og hvernig við getum ræktað eigin vellíðan og blómstrað.

Hvað tekur þú með þér?

  • Meiri sjálfsþekkingu og betri skilning á eigin styrkleikum, gildum og því sem stuðlar að vellíðan þinni.
  • Hagnýtar æfingar og góðar venjur sem þú getur nýtt til að hlúa að þér í daglegu lífi.
  • Aukna færni til að mæta áskorunum með seiglu, yfirvegun og sjálfsmildi.
  • Nýjar leiðir til að rækta góð tengsl og sýna sjálfum þér og öðrum meiri góðvild.
  • Góða reynslu af samveru og tengsl við fólk sem deilir áhuga þínum á vellíðan og persónulegum þroska.

Umfram allt vonum við að þú öðlist þekkingu og reynslu sem hjálpar þér að hlúa að því sem skiptir þig máli, bæði í eigin lífi og í samskiptum við aðra.

Sex viðfangsefni sem stuðla að vellíðan

Námskeiðið byggir á PERMA-líkani Martins Seligmans um fimm undirstöðuþætti blómstrandi lífs: jákvæðar tilfinningar, virka þátttöku, tengsl, tilgang og árangur. Á námskeiðinu bætum við ró og endurheimt við sem grunn að þessum þáttum.

  • Laugardagur 6. febrúarkl. 10:00 til 16:00

    Ró

    Að finna jafnvægi í líkama og huga

    Við skoðum hvernig taugakerfið bregst við álagi og hvers vegna hvíld og endurheimt skipta máli fyrir vellíðan. Við kynnumst því hvernig öndun, núvitund, hreyfing, útivera, svefn og næring geta stutt við jafnvægi í daglegu lífi.

    Inngangur að jákvæðri sálfræði og lífeðlisfræði vellíðunar. Máltíð er innifalin.

  • Þriðjudagur 23. febrúarkl. 17:00 til 19:00

    Jákvæðar tilfinningar

    Að taka eftir því góða og njóta þess

    Við skoðum hvers vegna jákvæðar tilfinningar eins og gleði og þakklæti skipta máli fyrir líkama og huga. Við æfum okkur í að taka eftir góðum augnablikum og njóta þeirra, án þess að gera lítið úr erfiðum tilfinningum.

  • Þriðjudagur 2. marskl. 17:00 til 19:00

    Styrkleikar og virk þátttaka

    Að nýta styrkleikana og finna flæði

    Þú kynnist eigin styrkleikum og lærir hvernig þú getur nýtt þá í lífi, starfi og samskiptum. Við fræðumst líka um flæði, þegar við gleymum okkur við verkefni sem vekur áhuga okkar og reynir hæfilega á okkur.

  • Þriðjudagur 9. marskl. 17:00 til 19:00

    Tengsl

    Að hlúa að félagslegum tengslum

    Góð tengsl eru meðal mikilvægustu undirstaðna vellíðunar. Við skoðum hvað einkennir gefandi samskipti og hvernig hlustun, nærvera, góðvild og þakklæti styrkja tengsl okkar við aðra.

  • Þriðjudagur 16. marskl. 17:00 til 19:00

    Merking og tilgangur

    Að lifa í samræmi við eigin gildi

    Hvað skiptir þig mestu máli og hvaða gildi viltu hafa að leiðarljósi? Við skoðum hvernig gildin okkar og það sem veitir okkur tilgang geta veitt leiðsögn þegar við tökum ákvarðanir og mætum áskorunum.

  • Þriðjudagur 6. aprílkl. 17:00 til 19:00

    Árangur og vöxtur

    Að setja sér markmið og læra af reynslunni

    Við skoðum hvernig við getum sett okkur markmið sem skipta máli og tekið raunhæf skref í átt að þeim. Við kynnumst vaxtarhugarfari og því að mæta okkur sjálfum af mildi þegar ekki fer allt eins og ætlað var.

Kennt er í Hlíðasmára 19, 4. hæð, Kópavogi.

EIK appið

Frá fræðslu til daglegra venja

EIK appið styður við námið milli námskeiðskvölda. Með hverjum nýjum námsþætti opnast efni með stuttum fróðleik, spurningum til umhugsunar og æfingum sem tengjast því sem við fjöllum um á námskeiðinu. Æfingarnar snúast meðal annars um öndun, þakklæti, styrkleika og markmið.

Æfingarnar eru valfrjálsar og hugsaðar sem stuðningur við námið. Hver og einn velur hvað hentar honum og hversu miklum tíma hann vill verja í þær.

Þú hefur aðgang að appinu í sex mánuði og getur því haldið áfram að nýta efnið eftir að námskeiðinu lýkur.

EIK appið í síma: dagurinn í dag í rýminu Gleði og æfingin Þrír góðir hlutir
Hrönn Róbertsdóttir og Eva Björk Sveinsdóttir

Hrönn RóbertsdóttirEva Björk Sveinsdóttir

Leiðbeinendur

Hrönn Róbertsdóttir er tannlæknir með diplóma í Sleep Dental Medicine og réttindi í Buteyko öndunartækni. Hún er eigandi Brosið Heilsuklínik, þar sem hún hefur innleitt jákvæð inngrip í daglegt starf.

Eva Björk Sveinsdóttir er viðskiptafræðingur og frumkvöðull með áratuga reynslu af uppbyggingu vörumerkja. Hún hannaði EIK appið sem fylgir námskeiðinu.

Þær kynntust í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og stofnuðu EIK til að færa þá þekkingu nær daglegu lífi fólks.

Algengar spurningar

Fyrir hverja er námskeiðið?

Fyrir alla sem vilja kynnast því hvað rannsóknir segja um vellíðan og lífsgæði og hvernig við getum nýtt þá þekkingu til að lifa blómstrandi og innihaldsríku lífi.

Þarf ég að hafa einhverja þekkingu fyrirfram?

Nei, engin fyrri þekking á jákvæðri sálfræði er nauðsynleg.

Þarf ég að gera æfingarnar í appinu?

Nei, æfingarnar eru hugsaðar sem stuðningur við það sem þú lærir á námskeiðinu. Þú velur hvaða æfingar þú gerir og hversu oft.

Hvað ef ég missi af námskeiðskvöldi?

Það getur alltaf eitthvað komið upp á. Fræðsluefni og æfingar hvers kvölds eru aðgengileg í appinu, svo þú getur kynnt þér efnið þegar þér hentar. Námskeiðskvöldin eru ekki endurtekin og ekki er veittur afsláttur vegna fjarveru.

Hvernig greiði ég?

Þegar þú hefur skráð þig sendum við þér tölvupóst með staðfestingu og greiðsluupplýsingum. Plássið er þitt þegar greiðsla hefur borist.

Get ég hætt við?

Já, ef þú afbókar með að minnsta kosti viku fyrirvara færðu námskeiðsgjaldið endurgreitt að fullu. Eftir það er gjaldið ekki endurgreitt, en þú getur boðið öðrum að taka þitt sæti eða fært skráninguna þína yfir á næsta námskeið.

Get ég fengið styrk frá stéttarfélaginu mínu?

Mörg stéttarfélög veita styrki til námskeiða. Kannaðu hjá þínu félagi hvort þú eigir rétt á styrk fyrir þessu námskeiði. Við sendum þér kvittun sem þú getur lagt fram með styrkumsókninni.

Þarf ég að vera með snjallsíma?

EIK appið er ætlað fyrir snjallsíma. Ef þú ert ekki með snjallsíma geturðu haft samband við okkur og við finnum lausn saman.

Get ég gefið námskeiðið í gjöf?

Já, sendu okkur tölvupóst á eik@eikhouse.is og við útbúum fallegt gjafabréf.